|
Sleepless in Seattle |
|
Blogg23.12.2008Jóla og nýárskveðjaVið óskum öllum vinum og ættingjum gleðilegra jóla og farsældar á nýjju ári. 1.11.2008Það styttist Mér skilst að margir séu orðnir þreyttir á síðustu fyrirsögn. Þá er best að ýta henni niður. Ég veit hreinlega ekkert hvað ég á að blogga um í dag. En hérna kemur einhver spuni: Við höfum gengið frá öllum flugmiðum heim og hótelgistingu í Boston (tvær nætur) á leiðinni heim. Sérstakar þakkir til vildarpunktarstyrktaraðila: Mamma, Magga tengdó, Helga Dröfn og svo átti ég smá Erum farin að hlakka mikið til að koma. En höfum samt eiginlega ekki mikinn tíma til að hugsa um það því það er alveg brjálað að gera í skólanum hjá okkur báðum og auðvitað Böðvari Thor líka. Gummi er búin að velja sér dagsetningu til að verja lokaverkefnið og síðast þegar ég vissi þá varð 3. Des fyrir valinu. Geri ráð fyrir að það standi. Gummi sést ekki mikið á heimilinu þessa dagana en hann reynir þó að skreppa heim í kvöldmat og þá aðallega til að hitta litla snillinginn hann Böðvar og kannski mig líka. Ég sit eins og klessa allan daginn í tölvunni og klóra mér í hausnum yfir öllum forritunum sem ég er að vinna á og fer inná milli í ræktina til að vinna á móti hamborgararassinum og koma hreyfingu á blóðið. Tölvan mín er orðin svo stút full að ég bíð eftir að hún krassi. Ég held að ég eigi 3GB eftir af minninu. Það segir ýmislegt um það hversu hratt og vel hún vinnur þessa dagana. Ég hef nú gert mér glaðan dag inná milli og kíkt út. En það æxlast oftast þannig að klukkan er meira en 9 pm og oftast á föstudags eða laugardagskveldi. Skrítið hvað það er tilviljanalkennt Heiðrun lendir mikið í þessu líka. Fórum td. um síðustu helgi á stelputjútt. Hittumst 6 stelpur (íslenskar) + einn eiginmaður (ekki minn samt) pöntuðum okkur mat og blönduðum Mojito og smelltum okkur á klúbb á eftir og dönsuðum eins og vitleysingar. Sunnudagurinn var æði. Svo sannarlega fríður hópur af eðal-stelpum. Svo má ekki gleyma að segja frá því fórum með stórum hóp úr skólanum á óperuna "Phantom of the opera" Það var mjög gaman sérstaklega eftir sýninguna hehe. já ég veit, ég er svo óþroskuð ennþá. Allavegana, Gummi sofnaði á sýningunni. Það segir nú ýmislegt vegna þess að honum finnst betra að sofa á morgnanna en ekki á kvöldin. Mér fannst þetta reyndar mjög flott og það var sko ekkert til sparað í leikmynd og búningagerð. Hefði þótt þetta töluvert skemmtilegra ef að Halla Dröfn hefði verið uppá sviði. Gleymi því aldrei þegar ég fór á útskriftartónleikana hennar þar sem hún átti sviðið. Böðvar Thor er orðinn svolítið amerískur. Hann svarar manni á ensku með "yes" og "no". Hann talar orðið heilmikla ensku. En skilur hvoru tveggja. Stundum finnst okkur auðveldara að leiðbeina honum á ensku. Þetta er svo sem ekkert skrítið þar sem hann eyðir 8 tímum á dag í leikskólanum í sínu amreíska umhverfi. og 4 tímum með okkur á dag. Böðvari finnst voðalega gaman að leika sér með bíla og að láta lesa fyrir sig bækur. Held að hann hafi komið með 5 bækur til pabba síns í gær og mátti hann lesa þær allar fyrir hann. Doddi í leikfangalandi er alveg í sérflokki. Brosir út að eyrum hvern einasta morgun þegar hann sér Dodda bókina sína. Þá segir bara Dúddi Dúddi og gleðin skín í gegnum hann. Hann er ofaslega duglegur að æfa sig að hætta með bleyju. Það kom bara eitt slys í leiksólanum í gær og fyrradag. Hann er mjög duglegur að láta vita, sérstaklega þegar gera þarf nr.2 Ég er nú ekkert viss um að hann kæri sig um að ég sé að segja frá þessu hérna á veraldarvefnum en ég fæ þá bara skammir Það er engin ný mynd af Gumma þannig að ég reyni bara að lýsa honum eftir bestu getu. Hann er ennþá meðalhár og í kjörþyngd, dökkhærður með þétta og flotta skeggrót, einstaklega fallegt bros, góðar augabrýr og augu sem birta allan heiminn. Þar hafið þið það Í næstu viku 5. Nóv ætla ég og Heiðrún að fara á tónleika með henni Alanis Morisette vinkonu okkar. Tek það fram að þessir miðar voru keyptir áður en bankarnir flippuðu. Það var meira segja komið með tillögu á þessu heimili um að selja miðana en ég lét það sem vind um eyru þjóta. Hún er nú í svo miklu uppáhaldi.. Erum á fullu í íbúðarmálum. Komin með augastað á tveimur efnilegum. Megið láta mig vita ef þið vitið um e-ð.. bestu kveðjur heim og sjáumst fyrr en varir 10.10.2008KrepputalGudmundur Bodvarsson skrifar frá Seattle Það er lítið annað rætt hér í bæ en um bankana á íslandi og t.a.m fylgjast kennararnir mínir grannt með málum þar. Ég hef átt í verulegum vandræum með að einbeita mér að náminu síðustu vikuna því að ég er búinn að vera að hlusta á fréttir, skoða mbl.is, visi.is og hvað þetta heitir nú allt saman og var að verða verulega þunglyndur yfir þessu öllu saman. Ég er að reyna að hætta að pæla svona mikið í þessu þvi að tíminn líður og maður verður að vera búinn með verkefnið áður en við fljúgum heim. Vinur okkar frá Taivan sagði okkur frá því að ísland hefði verið í fréttunum þar í landi. Ætli Taivanbúar hafi hugmynd um hvað Ísland sé? held ekki. Þó að það sé fátt skondið um þetta allt saman að segja þá finnst mér svoldið skondið að sérfræðingar í Bretlandi Ég var ekki eins forsjáll (já það er orð Eygló) og Kristjana systir mín að selja verðbréfin mín í tíma og eru þau frosin í rústum Landsbankans. Væntanlega búinn að tapa talsverðu fé þó að ég voni að það verði eitthvað eftir. Þetta eru (voru) peningar sem við þurfum að nota mánaðarlega því að styrkurinn koverar ekki kostnaðinn hérna þannig að þetta er ekki gott mál. Við erum þó ekki í neinu panikki og það margt verra en að tapa smá pening, ef maður hefur í og á sig og sína . Við erum búin að vera í viðræðum við foreldra okkar og okkur sýnist að þar verði lánalínur opnar og gjaldeyrisskiptasamningar verði gerðir sem er ákveðið öryggi og mun að öllum líkindum róa mannskapinn. Kjörin verða afskaplega góð, talsvert undir Libor-vöxtum Böðvar Thor hefur ekki frétt af kreppunni ennþá og er í banastuði þessa dagana, hermir eftir okkur ýmiss orð og leikskólakennararnir segja að hann sé farin að segja hin og þessi orð á ensku, away, outside og I did it var á blaðinu í gær um orð sem hann hafði sagt þann daginn og svo segir hann bleyja heima og diper í leikskólanum. Svakalega gaman að fylgjast með þessu og ég geri mér stundum ferð heim seinni partinn til að hitta hann því oftast er hann farinn að sofa þegar ég kem heim. Við Þorbjörg höfum mestmegnis verið að vinna síðustu daga og vikur og ekki gert margt annað en fórum þó á Óperu um þar síðustu helgi á frægt stykki sem heitir Phanthom of the opera en ég varð eitthvað þreyttur rétt fyrir hlé og sofnaði! Fórum svo á alvöru djamm eftir það, klúbb sem var opinn alveg til 2, það var allavega mikið gaman og mikið grín. Þorbjörg segir kannski meira frá þessu síðar með myndum og alles. Þó alls ekki víst þar sem hún er á fullu að læra alla daga enda þarf hún að læra á 5 eða 6 forrit þessa önnina!! Baráttukveðjur heim á frón Gummi Flettingar í dag: 14 Gestir í dag: 3 Flettingar í gær: 16 Gestir í gær: 4 Samtals flettingar: 48876 Samtals gestir: 22139 Tölur uppfærðar: 16.3.2010 18:03:02 |
Vafraðu umEldra efni
Nafn: Gummi, Þorbjörg og Böðvar ThorFarsími: Gummi 206-321-6464 Þorbjörg 206-321-0307Tölvupóstfang: gab9@u.washington.edu thorbjorg80@gmail.comAfmælisdagur: 9.Jan. 8.Nóv. 30.NóvHeimilisfang: 6315 NE Radford Dr, apt#3411 Seattle, WA 98115Staðsetning: SeattleMySpace vefsíða: http://www.myspace.com/superspicyhotTenglar
|